Þegar ég fór um daginn til S-Afríku í þrjár vikur í æfingabúðir að þá kom Ragnheiður systir og hjálpaði Önnu með krakkana á meðan.
Við óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegs árs með kærri þökk fyrir liðið ár.
Rétt fyrir jólin keppti Olga á ný í fimleikum og stóð sig af vanda vel. Hér koma nokkrar myndir sem sýna hvað Olga var dugleg.
Örn átti afmæli 15. nóvember s.l. og varð 11 ára. Hann bauð 7 strákum í veislu auk þess sem Olga og hennar vinkona Hanna og Albert og hans vinur Oskar voru með.
Í sambandi við afmælisdag Olgu um daginn kom Ragnheiður systir mín og guðmóðir Olgu í heimsókn til okkar. Þetta var í fyrsta skiptið sem hún kemur hér til Växjö síðan við fluttum.
Olga átti afmæli um daginn og hélt heljarinnar veislu heima og bauð öllum bekknum sínum 2 B í Högstorp skólanum í Växjö.
Örn og strákarnir í 11 ára flokki í IFK Växjö,
unnu DM í síðustu viku. Það
þýðir svona ef maður samlíkir þessu við Ísland að þá urðu þeir svæðismeistarar
eða Bikarmeistarar svæðisins í sínum flokki. Hér koma nokkrar myndir.
Örn og Olga
kepptu á fimleikamóti í gær í Grimslöv 30km frá Växjö. Við Anna og Albert horfðum á og gekk allt
mjög vel. Hér koma myndir frá mótinu.
.

Fyrr í sumar þá bætti Örninn sig vel í
hástökki á skólamóti í Växjö, 1.30m stökk kappinn, hér kemur stökkið á filmu við mikinn fögnuð hans
sjálfs og bekkjarfélaganna.
Ör keppti um
daginn í annað skiptið í kringlukasti á móti. Hann kastaði 29.64m í 11 ára
flokki stráka og sigraði með yfirburðum með litlu 600gr kringlunni.
Það var ótrúlegt
að hitta Ingibjörgu Ívarsdóttur og Birgittu Guðjónsdóttur á HM í Berlín.
Birgittu rekst að vísu á inn á milli á Akureyri en í sjálfu sér ekki mjög oft.
En það eru liðin ansi mörg ár síðan ég sá Ingibjörgu.
Anna og
krakkarnir komu með á HM í Berlín um daginn. Það er í annað skiptið sem þau eru
öll með, hitt skiptið var árið 2006 á EM í Gautaborg.
Eggert Boga,
Siggi Einars og Einar Vill í brekkunni á Landsmótinu á Akureyri í sumar. Það
var gaman að hitta strákana og rifja upp gamlar endurminningar. Við kepptum
allir á sama tíma og Eggert kastaði lengst 63.08m í kringlunni, Siggi 84.94m og
Einar 86.80m í spjótinu sem er enn Íslandsmet.
Við fórum fjölskyldan í útileikhús skammt frá Växjö í sumar og horfðum á Robin Hood. Það var virkileg agaman og í lok sýningarinnar fengum við nokkrar myndir af helstu leikurunum með Erni og Olgu. Albert var feimin g vildi ekki vera með á myndunum.
Ævintýrið byrjaði á HM í Helsinki árið 1983. Það eru 26 ár síðan gott fólk. Ég tók það saman í dag að ég er að fara á mitt 32. Stórmót. Þar á ég við Ólympíuleika, Heimsmeistaramót inni og úti og svo Evrópumeistaramót inni og úti.
Ég tók mig til um daginn og flaug í boði Landsmótsnefndar UMFÍ beint til Akureyrar frá Kaupmannahöfn og tók krakkana mína með mér. Við bjuggum í góðu yfirlæti sem ávallt hjá Aðalbjörgu systir og hennar manni Óla og dóttur þeirra Þóru.
Gamall félagi og vinur kom í heimsókn með efnilega unglinga frá ÍR um daginn.
Örn og Olga fóru með mömmu sinni gær og Alberti litla til Kalmar og kepptu á frjálsíþróttamóti. Þau stóðu sig vel og náðu í smanlagt fjóra verðlaunapeninga og einn bikar.
Gleðilega hátíð á þjóðhátíðardaginn 17. Júní 2009
'
Í dag kom Kristín Birna Ólafsdóttir fjölþrautarkona frá Íslandi í heimsókn hér inn á æfingasvæðið í Chula Vista.
Örn keppti í gær á barnamóti í Växjö í 11 ára flokki stráka.
Jæja, allir vinir og kunningjar á ‚Íslandi. Ég er að myndast við það að koma síðunni aftur í gagnið. Ástæðan fyrir endurksipulagningunni á henni eru margar en fysrt og fremst jákvæðar. Það hefur nefnilega gengið mjög vel síðastliðin ár og allt vaxið á öllum sviðum hjá okkur og maður verður nú bara að vera jákvæður í sambandi við það á þessum kreppu tímum.
Nýjan heimasíðan mín átti ekki að fara í loftið fyrr en þann 1. Janúar n.k. en út af fyrirlestri á sem ég held á morgun fimmtudag á Selfossi hef ég ákveðið að opna hana núna þrátt fyrir að hún sé ekki alveg tilbúin. Bið ég fólk að hafa biðlund með mér í því að skilja að formlega verður síðan opnuð þann 1. Janúar 2009.
| Winter Throwing Cup in Arles | 20.03.2010 |
| Indoor Throwing Carneval in Växjö | 27.03.2010 |
| Trainingcamp in Växjö | 22.03.2010 |
| Trainingcamp in San Diego | 19.04.2010 |