Heimsmeistaramótið í Berlín 32. Stórmótið
Ævintýrið byrjaði á HM í Helsinki árið 1983. Það eru 26 ár síðan gott fólk. Ég tók það saman í dag að ég er að fara á mitt 32. Stórmót. Þar á ég við Ólympíuleika, Heimsmeistaramót inni og úti og svo Evrópumeistaramót inni og úti. Það eru komnir 7 Ólympíuleikar, 4 sem keppandi og 3 sem þjálfari fyrir Ísland, Danmörku og Eistland. 15 Heimsmeistaramót þar af 11 utanhúss og 4 innanhúss, 5 sem keppandi og 6 sem þjálfari. Loks 10 Evrópumeistaramót og þar eru það 5 innanhúss og 5 utanhúss en bara tvö sem keppandi.
Hátindar ferilsins eru nokkrir. Það var auðvitað gaman sem keppandi þegar ég komst fyrst í úrslit á EM í Split 1990. Og svona eftir á er ég bara nokkuð stoltur af því að hafa komist í úrslit á Ólympíuleikum, en það gerðist í Bracelona 1992.
Sem Landsliðsþjálfari íslands upplifði ég ævintýrið með Völu Floasdóttur í Sydney þegar hún fékk Brons á Ólympíuleikunum árið 2000 í stangarstökki.
Sem Landsliðsþjálfari Dana í kastgreinum upplifði ég Evrópumeistaratitl innanhúss með Joachim B. Olsen árið 2005 og árið áður náði hann í Brons á Ólympíuleikunum í Aþenu í kúluvarpi.
Nú síðan náði Gerd Kanter bæði í HM Gull og Ólympíugull árin 2007 og 2008 í kringlukasti.
Þetta er því búin að vera ferð upp á nokkuð mörg ár núna þegar ég horfi til baka og velti fyrir mér hlutskipti mínu í lífinu. En ég verð að segja ég hefði ekki viljað missa af lestinni, þetta er búið að vera ótrúleg ferð.
Nú veit ég ekkert hvað framhaldið verður en ég er allavega bjartsýnn á strákana mína núna fyrir HM í Berlín. Þeir keppa á þriðjudag og miðvikudag allir þrír og ég vona það besta. Þið hugsið vel til þeirra.
Kveðja
Véddi
Add commentary (1)