vesteinn.png

ÖRN BÆTIR SIG


pic


Örn keppti í gær á barnamóti í Växjö í 11 ára flokki stráka.  


Hann stóð sig vel og stökk 1.20m í hástökki sem er persónulegt met og varð í fjórða sæti.
Örn stökk 3.81m í langstökki og var 5 cm frá sínu besta og varð í fimmta sæti.
Þá varpaði Örn kúlunni sem er 2kg 9.91m og vann silfurverðlaun eins og sjá má á myndinni.
Þetta var mikil bæting hjá Erni í kúluvarpinu þar sem hann hafði varpað lengst 8.59m áður.

Öll fjölskyldan var með á mótinu og voru Olga og Albert virkilega stolt af stóra bróður. Við fórum svo öll á kaffihús á eftir og fögnuðum góðu móti hjá Erni.

 




Add commentary (1)
Name:
E-mail:
Subject:
Control code:
Commentary:
Save name and e-mail (cookie):
 

Powered by AutomatWeb™ - Culture in DatabaseE-Life

All rights reserved